Skip to product information
1 of 9

Húðfegrun

Fitueyðing Sprautur

Fitueyðing Sprautur

Verð 39.990 kr.
Verð Verð með afslætti 39.990 kr.
Afsláttur Uppselt
Size

Fitueyðing með fituleysandi efni brýtur niður frumuveggi fitufrumna á meðferðarsvæði og í kjölfarið eyðist fitan hægt og rólega úr líkamanum í gegnum sogæðakerfið.
Um er að ræða sprautumeðferð sem skilar varanlegum árangri sé heilbrigðum lífstíl viðhaldið. Meðferðin er einföld, fljótleg og áhættulítil. Hún hefur í för með sér vægar aukaverkanir og krefst mun minna inngrips en skurðaðgerð.

Árangur af fitueyðingu er sambærilegur við árangur af fitusogi með skurðaðgerð en það sem fitueyðing hefur fram yfir fitusog er að einstaklingur er fljótari að jafna sig og getur í flestum tilfellum farið í vinnu strax að meðferð lokinni.

  • Eyðir fitu á erfiðum svæðum
  • Einföld og fljótleg meðferð
  • Góður árangur án alvarlegs inngrips

Fjöldi meðferða: Áætla má að framkvæma þurfi meðferð í 2-6 skipti til að ná sem bestum árangri, breytilegt er eftir meðferðarsvæði og líkamlegu ástandi hversu margar meðferðir þarf. Að lágmarki 6-8 vikur þurfa að líða á milli meðferða, fer eftir meðferðarsvæði.

Ath. að algengt er að það þurfi 1 spr. (10 ml) per 10x10 cm2 svæði.

15% afsláttur af 2spr
20% afsláttur af 3spr
25% afsláttur af 4spr
30% afsláttur af 5spr eða fleiri
 

Sjá nánari upplýsingar