{"product_id":"brite-lite-3d-sculptured-mask","title":"BRITE LITE SCULPTURED MASK","description":"\u003cp\u003eBRITE LITE 3D SCULPTURED MASK er sérhannaður rakamaski sem styður við árangur eftir Dermapen örnálameðferð. Hann var sérstaklega þróaður fyrir húð sem er með litabreytingar, sólskemmdir, öldrunarmerki eða ójafna áferð eftir bólur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaskan er einnig hægt að nota sem vikulega húðmeðferð sem gefur húðinni aukinn ljóma, raka og frísklegra útlit.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePakkinn inniheldur 5 maska.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eHelstu eiginleikar\u003c\/h2\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eHjálpar til við að draga úr sýnilegum dökkum blettum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eGefur húðinni bjartara og jafnara útlit\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eMótaður 3D maski sem fellur fullkomlega að andliti og efri hluta háls\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eMjúkt, kælandi og rakadrægt efni\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStyður við húð sem verður fyrir litabreytingum og sólskemmdum\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch1\u003eLýsing\u003c\/h1\u003e\n\u003cp\u003eBRITE LITE™ 3D SCULPTURED MASK er öflugur húðmaski fyrir þá sem vilja vinna gegn ójöfnum húðlit, sýnilegum dökkum blettum og áhrifum sólskemmda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFormúlan inniheldur \u003cstrong\u003eKojic Dipalmitate\u003c\/strong\u003e, virkt innihaldsefni sem hjálpar til við að draga úr myndun melaníns með því að hamla tyrosinase ensíminu. Það stuðlar að bjartara húðútliti og hjálpar til við að minnka sýnileika litabreytinga, aldursbletta og ójafns húðtóns.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaskinn er framleiddur úr mjúku, andardrægu og mjög rakadrægu spunlace viscose rayon efni sem mótast þægilega að andliti og tryggir jafna dreifingu virkra innihaldsefna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHylaFuse™ Complex\u003c\/strong\u003e hjálpar til við að koma hýalúrónsýru og öðrum virkum efnum dýpra inn í húðina fyrir hámarks raka og þægindi.\u003c\/p\u003e\n\u003ch1\u003eHentar fyrir\u003c\/h1\u003e\n\u003cp\u003eBRITE LITE™ 3D SCULPTURED MASK hentar sérstaklega fyrir húð með:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• Dökkum blettum og litabreytingum\u003cbr\u003e• Aldursblettum\u003cbr\u003e• Sólskemmdum\u003cbr\u003e• Ójöfnum húðlit\u003cbr\u003e• Bólum og eftirbólublettum\u003cbr\u003e• Öldrunarmerkjum\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHentar einnig vel eftir Dermapen™ meðferðir þar sem unnið er með litabreytingar og húðendurnýjun.\u003c\/p\u003e\n\u003ch1\u003eHelstu kostir\u003c\/h1\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eBjartari og jafnari húðtónn\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHjálpar til við að draga úr sýnilegum dökkum blettum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStyður við húð sem verður fyrir litamyndun\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVeitir mikinn raka og næringu\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHjálpar til við að róa húðina eftir endurnýjandi meðferðir\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLéttur og þægilegur maski sem auðvelt er að nota\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHentar fyrir viðkvæma og vandmeðfarna húð\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch1\u003eVirk innihaldsefni\u003c\/h1\u003e\n\u003ch2\u003eKOJIC DIPALMITATE\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eAfleiða sem hamlar tyrosinase og hjálpar til við að draga úr myndun litarefnis í húð. Styður við bjartara húðútlit og hefur einnig andoxunar- og róandi eiginleika.\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eHYLAFUSE™ COMPLEX – HYALURONIC ACID (HA)\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eÞriggja þyngda hýalúrónsýrusamsetning sem hjálpar til við djúpan raka, bætt rakaástand og langvarandi þægindi húðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eSQUALANE\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eNærandi innihaldsefni með rakagefandi og róandi eiginleika sem hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu jafnvægi húðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003eNON-WOVEN SPUNLACE VISCOSE RAYON\u003c\/h2\u003e\n\u003cp\u003eMjúkt, andardrægt og mjög rakadrægt efni sem tryggir þægilega notkun og góða dreifingu virkra innihaldsefna.\u003c\/p\u003e\n\u003ch1\u003eNotkun\u003c\/h1\u003e\n\u003cp\u003eNotið einu sinni í viku fyrir húð sem glímir við litabreytingar eða ójafna áferð.\u003c\/p\u003e\n\u003col\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eHreinsið húðina vandlega.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eSetjið BRITE LITE™ 3D SCULPTURED MASK á andlitið, byrjið við enni og festið um eyru.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eSléttið úr maskanum yfir restina af andlitinu.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eLátið virka í \u003cstrong\u003e10–30 mínútur\u003c\/strong\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eFjarlægið maskann og nuddið umfram innihaldsefni varlega inn í húðina.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eLjúkið með \u003cstrong\u003eVITAMIN RICH REPAI\u003c\/strong\u003e til að næra og styðja við húðina.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ol\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eBRITE LITE™ 3D SCULPTURED MASK – Vikuleg birtandi meðferð fyrir jafnari, rakameiri og ljómandi húð.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Húðfegrun","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47388115665067,"sku":null,"price":15999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0435\/8039\/1588\/files\/DPD_BL_MASK_5.png?v=1783959294","url":"https:\/\/www.vefverslun.hudfegrun.is\/is\/products\/brite-lite-3d-sculptured-mask","provider":"Húðfegrun","version":"1.0","type":"link"}