
ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.
Bætt húðheilsa og betra ysta lag
Endurnærandi pakkinn er tilvalinn til að fríska upp á og endurnæra þurra, þreytta og líflausa húð en vinnur einnig sérlega vel á sýktum unglingabólum. Pakkinn inniheldur:
2x Lúxus Húðslípun andlit
2x Ávaxtasýrumeðferð andlit
Fyrir hvern er pakkinn?
Frábær meðferðatvenna þar sem byrjað er á að hreinsa og næra húðina vel með Lúxus Húðslípun. Hreinna yfirborð og gott rakastig gera það að verkum að Ávaxtasýrumeðferð skilar meiri virkni og nær að smjúga dýpra niður í húðina.
Meðferðapakkinn er tilvalinn fyrir sýkta og auma bóluhúð, þar sem báðar meðferðir hafa hreinsandi og bakteríudrepandi eiginleika, auk róandi og bólgueyðandi áhrifa á húðina.
Meðferðapakkinn hentar líka vel til að fríska upp á og endurnæra þurra, þreytta og líflausa húð, t.d. yfir vetrarmánuðina. Lúxus Húðslípun örvar endurnýjunarferli húðarinnar, gefur henni góðan raka og fjölda næringarefna, sem skilar sér í frísklegri, vel nærðri og ljómandi húð. Ávaxtasýrumeðferðin örvar frumuendurnýjun í ysta lagi húðarinnar, auk þess að jafna áferð og húðtón og milda hrukkur og fínar línur.
Mælt er með því að koma fyrst í Lúxus Húðslípun og síðan 7-14 dögum síðar í Ávaxtasýrumeðferð.
Pakkinn inniheldur 2 Lúxus Húðslípanir og 2 Ávaxtasýrumeðferðir til að hámarka árangur meðferða.
Endurnærandi pakkinn inniheldur þjónustu að andvirði 83.960 kr.
Verð m. 20% afslætti: 67.168 kr.
Þú sparar 16.792 kr.