Hyaluronic Booster

Hyaluronic Booster

Regular price
68.990 kr.
Verð
68.990 kr.
Regular price
Sold out
Stykkjaverð
per 

ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.

Eftir því sem við eldumst hægir smám saman á framleiðslu náttúrulegra fjölsykra, sem gefa húðinni raka og fyllingu; kollagens, sem gefur húðinni aukinn þéttleika; og elastíns, sem gefur húðinni teygjanleika. Húðin fer því að slappast og fínar línur og hrukkur byrja að myndast.

Auk náttúrulegra fjölsykra inniheldur Hyaluronic Booster ákveðna samsetningu amínósýra, sem eru aðal innihaldsefni kollagens. Það sem gerir Hyaluronic Booster svo sérstakt er þó fyrst og fremst náttúrulega steinefnið calcium hydroxiapatite (CaHA) sem örvar framleiðslu kollagens, elastíns og náttúrulegra fjölsykra í líkamanum. Þessi einstaka efnasamsetning viðheldur og stuðlar að heilbrigðari, þéttari og stinnari húð og grynnkar hrukkur og fínar línur.

Fjöldi meðferða:  Góður árangur næst eftir staka meðferð. Til að ná hámarksárangri er mælt með 2 meðferðum með 3-4 vikna millibili. Til að viðhalda árangrinum er mælt með Hyaluronic Booster meðferð á 6-12 mánaða fresti.