Húðfegrun
Illumination Kit
Illumination Kit
Tilboðsett frá Skin Ceuticals Illumination Kit: Luxury Skincare Duo
Sparaðu 4.608 kr með því að kaupa þennan einstaka dekur pakka sem kemur í takmörkuðu upplagi.
Pakkinn inniheldur tvær lykilvörur Skin Ceuticals en það eru:
Gentle Cleanser: Mild hreinsimjólk sem þrífur farða, augnmálningu og óhreinindi af húð. Hefur róandi áhrif á húðina, mýkir hana og gefur henni raka.
CE Ferulic: Margverðlaunað andoxandi C-vítamín serum sem veitir framúrskarandi vörn gegn UV geislum, mengun og öðrum umhverfisþáttum sem flýta öldrun húðarinnar. Einstök samsetning andoxunarefna hámarkar C-vítamín upptöku húðarinnar, verndar hana gegn sindurefnum, dregur úr hrukkum, fínum línum og slappleika og gefur húðinni fallegan ljóma.
Pakkinn hentar bæði venjulegri og þurri húð.