Áfram í upplýsingar um vöru
1 Á 7

Dermapen

Dermapen

Verð 36,990 kr.
Verð 0 kr. Verð með afslætti 36,990 kr.
Afsláttur Uppselt
Svæði
Magn

Dermapen örnálameðferð
Dermapen er háþróuð örnálameðferð sem örvar náttúrulega endurnýjun húðarinnar og styður við framleiðslu kollagens og elastíns. Meðferðin hjálpar til við að bæta áferð, raka, teygjanleika og ljóma húðarinnar og getur hentað við ýmsum húðvandamálum.

Hjá Húðfegrun notum við nýjustu kynslóð Dermapen tækninnar sem gerir meðferðina nákvæma og markvissa, með minni óþægindum og stuttum batatíma.

Sérsniðin að þinni húð

Meðferðin er alltaf aðlöguð að húðgerð, húðástandi og markmiðum hvers og eins. Samhliða örnáluninni er notað HYLA ACTIVE Serum eða sérhæft MG Collection serum frá DP Dermaceuticals, eftir því hvað hentar húðinni best.

MG Collection inniheldur sérhæfð serum sem geta verið valin með áherslu á meðal annars raka, litabreytingar, bólur, ör, viðkvæma húð og endurnýjun húðarinnar.

Fyrir hverja?
Dermapen hentar flestum húðgerðum og er hægt að aðlaga meðferðina að ólíkum húðástandi og markmiðum.

Fjöldi meðferða: 

Mælt er með að teknar séu 4-6 meðferðir til að ná sem bestum árangri. Framkvæma má meðferð með 2-6 vikna millibili, eftir því hversu djúpt niður í undirlag húðarinnar er unnið með nálunum. 

Sjá nánari upplýsingar

Árangur og fjöldi meðferða

Nánar um meðferð