Áfram í upplýsingar um vöru
1 Á 1

Ávaxtasýrumeðferð

Ávaxtasýrumeðferð

Verð 19.990 kr.
Verð Verð með afslætti 19.990 kr.
Afsláttur Uppselt
Title

Ávaxtasýrumeðferð er örugg og áhrifarík meðferð sem bætir áferð húðar, þéttir hana og nærir.

Í meðferðinni er notuð öflug og hrein sýru frá SkinCeuticals sem er sérstaklega hönnuð til þess að auka heilbrigði húðar. Meðferðina er hægt að aðlaga að öllum húðgerðum og húðvandamálum. Kostir þess að nota hreina sýru er aukin virkni, hún vinnur dýpra, litlar sem engar líkur á óþoli gegn henni og hún er með lágt ph gildi og skilar hún því hámarksárangri.

Hægt er að velja milli tvenns konar ávaxtasýrumeðferð, Micropeel 30% og Pigment Balancing Peel 40%. Báðar meðferðirnar vinna vel á ysta lagi húðar en búa þær yfir mismunandi kostum og er því gott að láta sérfræðinga okkar meta hvor meðferðin henti betur en fer það eftir húðtegund og markmiði með meðferð.


Micropeel 30% ávaxtasýrunar er öflugar sýrur sem vinna vel á ysta lagi húðar. Sýran hentar sérstaklega vel þeim sem glíma við ótímabær merki öldrunar, litabreytingar og aðra kvilla í húð að völdum sólar. Sýran hentar einnig vel þeim sem eru að glíma við þurrk í húð. Meðferðin vinnur á hrukkum og fínum línum, þéttir húð, gefur henni bjartara yfirbragð og hentar hún öllum húðtegundum.

Pigment Balancing Peel 40% ávaxtasýran er sterkari en Micropeel 30% sýran. Pigment Balancing Powder sem inniheldur  27% C-Vítamín og 4% emblica extract er blandað við sýruna og hentar hún því sérstaklega vel þeim sem glíma við litabreytingar í húð sem eru tilkomnar vegna sólarskemmda, hormónaójafnvægis eða fyrir þá sem eru með rauða bólgu flekki í húð.

Einnig er hægt að aðaga Pigment Balancing Peel 40% að þeim sem eru með virkar bólur (e.acne) með því að blanda Sanitizing Booster við og hentar því meðferðin einstaklega vel fyrir þá sem eru með mikla olíuframleiðslu og bóluhúð. Helstu kostir sýrunnar eru að hún vinnur vel á litabreytingum, ójafnvægi í olíuframleiðslu húðar, bóluhúð og veitir húðinni fallegan ljóma.

Fjöldi meðferða: Stök meðferð getur dugað til þess  fríska upp á húð og örva starfsemi hennar en til   sem bestum árangri er mælt með því að teknar séu 4-6 meðferðir með 10 - 14 daga millibili. Meðferðin hentar mjög vel með öðrum húðmeðferðum Húðfegrunar. 

Í lok ávaxtasýrumeðferðar er borinn á nærandi maski sem róar húðina eftir meðferð 

Sjá nánari upplýsingar