Hollywood Glow
Hollywood Glow
ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.
Hollywood Glow meðferðin þéttir húð á andliti og hálsi og gefur henni samstundis aukinn ljóma. Meðferðin hentar sérstaklega vel fyrir sérstök tilefni þar sem áhrifin sjást strax og húðin fær frísklegra og fallegra yfirbragð.
Meðferðin er framkvæmd með nær-innrauðu ljósi (NIR infrared light) sem hitar húðina á þægilegan máta og örvar kollagenframleiðslu hennar. Það gerir húðina þéttari, bætir áferð hennar og hjálpar jafnframt til við að sporna gegn öldrun húðarinnar. Hollywood Glow er örugg og þægileg meðferð sem hentar öllum húðgerðum.

Hollywood Glow
Árangur og fjöldi meðferða
Hollywood Glow veitir húðinni strax aukinn ljóma og getur bætt áferð hennar á sýnilegan hátt. Meðferðin:
- Gefur samstundis aukinn ljóma
- Þéttir slappa húð á andliti og hálsi
- Örvar kollagenframleiðslu
- Gerir áferð húðarinnar fallegri
Mælt er með að fara í 4 meðferðir til að ná sem bestum og langvarandi árangri. Ef markmiðið er hins vegar að fríska upp á húðina fyrir sérstakt tilefni getur ein meðferð verið næg.
Hollywood Glow
Nánari upplýsingar um Hollywood Glow
Á heimasíðu okkar finnur þú ítarlegri upplýsingar um Hollywood Glow meðferðina. Þar geturðu kynnt þér meðferðina nánar, lesið um helstu ávinninga hennar og fengið frekari fræðslu um hvernig hún getur bætt útlit og áferð húðarinnar.