Cover Recover
Cover Recover
COVER RECOVER (20ml) er farði og húðhirða í einni vöru sem veitir náttúrulega þekju, styður við endurheimt húðarinnar og ver hana með SPF 30/PA+++ gegn UVA- og UVB-geislum.
Formúlan var þróuð sérstaklega til notkunar eftir húðmeðferðir, svo sem Dermapen örnálun (microneedling), þar sem hún hjálpar til við að draga úr sýnilegum roða og óþægindum á meðan hún jafnar húðlit og veitir náttúrulega áferð.
COVER RECOVER™ fæst í 11 litbrigðum, þar á meðal litlausri útgáfu sem hentar sem dagleg sólarvörn. Formúlan inniheldur meðal annars hýalúronsýru, peptíð, andoxunarefni, probiotics (gerlaefni), vítamín og jurtaþykkni sem veita raka og styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
Létt og loftgóð áferðin leyfir húðinni að anda án þess að stífla svitaholur og hentar því vel til daglegrar notkunar.
Hentar fyrir
- Allar húðgerðir.
- Húð eftir faglegar húðmeðferðir.
- Húð með roða eða ertingu.
- Þá sem vilja farða með sólarvörn og húðumhirðu í einni vöru.
Helstu kostir
- Veitir náttúrulega og jafna þekju.
- Hjálpar til við að draga úr sýnilegum roða og ertingu eftir húðmeðferðir.
- Kælir, róar og veitir húðinni raka.
- Styður við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
- Hjálpar til við að verja húðina gegn sindurefnum og umhverfisáreiti.
- Mýkir sýnileg fíngerð og dýpri hrukkur.
- Létt formúla sem stíflar ekki svitaholur.
- Vatnsþolin SPF 30/PA+++ sólarvörn með víðtækri vörn gegn UVA- og UVB-geislum.
Notkun
Berið á húðina um 20 mínútum áður en farið er út í sól.
Endurnýið eftir þörfum, sérstaklega við langvarandi sólaráhrif.
Má nota strax eftir Dermapen örnálun (microneedling) og aðrar endurnýjandi húðmeðferðir samkvæmt ráðleggingum meðferðaraðila.
Virk innihaldsefni
Hýalúronsýra
Hjálpar til við að viðhalda raka, mýkir húðina og styður við náttúrulegt varnarlag hennar.
A-vítamín (Retinyl Palmitate)
Styður við endurnýjun húðfrumna og hjálpar til við að bæta áferð og ljóma húðarinnar.
Andoxunarefni (C- og E-vítamín ásamt vínberjakjarnaþykkni)
Hjálpa til við að verja húðina gegn sindurefnum og umhverfisáreiti.
Peptíð og gerlaefni (Probiotics)
Styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og hjálpa til við að styrkja húðina.
Allantoin
Róar húðina og hjálpar til við að draga úr óþægindum eftir húðmeðferðir.
