Háræðaslit og Rósroði
Háræðaslit og Rósroði
Lasermeðferð á háræðaslitum framúrskarandi meðferð sem vinnur vel á grunnum og djúpum háræðaslitum á andliti, bringu og fótum. Lasermeðferð við rósroða vinnur vel á rósroða í andliti og rauðum blettum.
Framkvæmd meðferðar: Meðferðin er framkvæmd með þeim hætti að lasergeislinn hitar æðina sem verið er að meðhöndla án þess að skaða húð eða nærliggjandi vefi. Í kjölfarið minnkar æðaslitið eða rósroðinn smám saman.
Fjöldi meðferða: Til að ná góðum árangri má áætla að framkvæma þurfi meðferð í 4-6 skipti fyrir æðar í andliti og að lágmarki í 6 skipti fyrir æðar á fótum. Áætla má að framkvæma þurfi meðferð á rósroða í 6-10 skipti. Mánuður þarf að líða á milli meðferða.
ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.