Fitueyðing Ultrasound
Fitueyðing Ultrasound
ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.
Fitueyðing með Ultrasound er háþróuð líkamsmótunarmeðferð sem byggir á nýjustu tækni á sviði fitueyðingar án skurðaðgerðar. Meðferðin nýtir markvissar ultrasound bylgjur til að brjóta niður fitufrumur á afmörkuðum svæðum á öruggan og náttúrulegan hátt.
Meðferðin er framkvæmd með Accent Prime tæki frá Alma Lasers, sem sendir frá sér nákvæmar ultrasound bylgjur djúpt inn í fitulagið. Þar sundrast fitufrumurnar og eyðast varanlega, án þess að hafa áhrif á yfirliggjandi húð eða nærliggjandi vefi.
Það sem gerir Fitueyðingu með Ultrasound sérstaklega eftirsóknarverða er að meðferðin er sársaukalaus, krefst engins batatíma og gerir einstaklingum kleift að snúa strax aftur til daglegra athafna. Árangurinn er varanlegur og næst án inngrips eða skurðaðgerðar.
Meðferðin hentar vel þeim sem vilja draga úr staðbundinni fitu á erfiðum svæðum þar sem mataræði og hreyfing ein og sér duga ekki til.

Fitueyðing Ultrasound
Árangur og fjöldi meðferða
Árangur Fitueyðingar með Ultrasound tækni er sambærilegur við árangur fitusogs með skurðaðgerð, með þeim mikilvæga mun að enginn niðurtími fylgir meðferðinni.
Til að ná sem bestum árangri er almennt mælt með 4–6 meðferðum, allt eftir meðferðarsvæði og markmiðum hvers einstaklings. Að lágmarki þurfa að líða 2 vikur á milli meðferða, þannig að líkaminn fái tíma til að vinna úr fitunni á eðlilegan hátt.
Fitueyðing Ultrasound
Nánari upplýsingar um Fitueyðingu Ultrasound
Á heimasíðu okkar finnur þú ítarlegar upplýsingar um Fitueyðingu Ultrasound. Þar geturðu kynnt þér meðferðina nánar, séð myndir, lesið um ávinning hennar og bókað tíma hjá sérfræðingum okkar.