Áfram í upplýsingar um vöru
1 Á 5

DermaClear

DermaClear

Verð 24.990 kr.
Verð Verð með afslætti 24.990 kr.
Afsláttur Uppselt
Title

Með DermaClear - Lúxus Húðslípun ertu í raun að fá þrjár húðmeðferðir í einni meðferð. Meðferðin er einstök og áhrifarík húðmeðferð sem inniheldur sog og veitir húðinni allt í senn slípun, hreinsun, raka og næringu og fer hún í gegnum þrjú skref.

1. skref - Yfirborðshreinsun og dauðar húðfrumur fjarlægðar með AHA sýru.

2.skref - Djúphreinsun með BHA sýru.

3.skref - Aukin raki gefin með andoxunar og kollagen serumi.

DermaClear hentar öllum húðtegundum og hægt er að aðlaga hana að hverjum og einum. Meðferðin flýtir endurnýjunarferli húðarinnar sem skilar sér í  mýkri, þéttari og sléttari húð. Einnig jafnar hún húðlit og áferð húðar, hreinsar hana af óhreinindum og minnkar ásýnd svitahola. 

Fjöldi meðferða: Til að fríska upp á þreytta og líflausa húð næst góður árangur eftir stakt skipti og sést árangur strax að meðferð lokinni. Til að vinna á óhreinindum eða öðrum húðvandamálum er hins vegar mælt með að teknar séu að lágmarki 3-6 meðferðir með 2-4 vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Ef húð er án sérstakra vandamála og ætlunin einungis að viðhalda árangrinum og halda húðinni ferskri, hreinni og vel nærðri er gott að endurtaka meðferðina á 4-6 vikna fresti.

Sjá nánari upplýsingar