TOXÍN
TOXÍN
ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.
Toxín meðferð er vinsæl og áhrifarík leið til að draga úr fínum línum og hrukkum sem myndast vegna endurtekinna andlitshreyfinga. Meðferðin felst í því að lítið magn af vöðvaslakandi efni er sprautað í ákveðna vöðva eða húðsvæði til að draga tímabundið úr vöðvasamdrætti. Þegar vöðvar slakna minnkar álag á húðina og línur verða mýkri eða minna áberandi. Húðin fær þannig sléttara og ferskara yfirbragð með auknum ljóma.
Algeng meðferðarsvæði eru meðal annars enni, svæðið milli augabrúna, broslínur við augnsvæði, nef, haka, kjálkalína, háls og axlarvöðvi. Meðferðin er fljótleg og framkvæmd með fínum nálum á nokkra stungustaði á því svæði sem meðhöndla á.

TOXÍN
Árangur og eftirfylgni
Áhrif Toxín meðferðar koma yfirleitt fram innan nokkurra daga, en full verkun getur tekið allt að tvær vikur. Árangurinn er einstaklingsbundinn en varir að jafnaði í um það bil 3–4 mánuði. Með reglulegri endurtekningu er hægt að viðhalda sléttara og unglegra yfirbragði húðarinnar.
Meðferðin hefur stuttan batatíma og flestir geta snúið aftur til daglegra athafna strax eftir meðferð. Vægur roði eða marblettir á stungustöðum geta komið fram fyrstu klukkustundirnar eða dagana, en hverfa yfirleitt fljótt.
TOXÍN
Nánari upplýsingar
Ef þú vilt fræðast nánar um Toxín meðferð, meðferðarsvæði, undirbúning og eftirmeðferð geturðu lesið ítarlegar upplýsingar á heimasíðu Húðfegrunar.