Skip to product information
1 of 7

Húðfegrun

Laserlyfting

Laserlyfting

Verð 59.990 kr.
Verð Verð með afslætti 59.990 kr.
Afsláttur Uppselt
Svæði

Laserlyfting er öflugasta anti-aging meðferð Húðfegrunar, byggð á nýjustu tækni frá Alma Lasers, einum fremsta framleiðanda heims á sviði húðmeðferða

Það sem gerir laserlyftingu einstaka er tæknin sem tryggir örugga og árangursríka uppbyggingu húðarinnar djúpt í undirlagi hennar með náttúrulegum og sársaukalausum hætti. Meðferðin eykur kollagen og elastín framleiðslu djúpt í undirlagi húðar og kjölfarið þéttist slöpp húð á andliti og hálsi, hrukkur og línur mildast og skilar meðferðin góðum langtíma árangri.

Árangur af laserlyftingu er sambærilegur við árangur af andlitslyftingu með skurðaðgerð en það sem laserlyfting hefur framyfir andlitslyftingu er að einstaklingur getur farið beint í vinnu eftir meðferð. 

Framkvæmd meðferðar: Lasergeislanum er beint á það svæði sem verið er að meðhöndla. Geislinn berst undir ysta lag húðarinnar og byggir upp kollagen og elastínþræði hennar (teygjanleika húðarinnar) án þess að skaða húð eða nærliggjandi vefi. Í kjölfarið grynnka línur og hrukkur, slöpp húð þéttist og áferð húðarinnar verður fallegri.

Fjöldi meðferða:  Fjöldi meðferða fer eftir markmiði með meðferð en ef húð er orðin slöpp má áætla að framkvæma þurfi meðferð í 4-6 skipti til að ná sem bestum árangri en með hverju skipti næst árangur. Ef framkvæma á meðferð í forvarnarskyni næst góður árangur eftir staka meðferð. Endurnýjun og örvun kollagens í húðinni hefst strax að meðferð lokinni og heldur áfram í 3-6 mánuði eftir meðferð. Mánuður þarf að líða á milli meðferða.


Sjá nánar og bókaðu.

ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.

Sjá nánari upplýsingar