Laserlyfting
Laserlyfting
ATH! Ef keypt eru gjafabréf eða meðferðir fyrir aðra en greiðanda, skal vinsamlegast taka það fram við greiðslu.
Laserlyfting er öflugasta anti-aging meðferð Húðfegrunar og byggir á nýjustu tækni frá Alma Lasers, einum fremsta framleiðanda heims á sviði faglegra húðmeðferða.
Það sem gerir Laserlyftingu einstaka er nákvæm og markviss lasertækni þar sem lasergeislanum er beint djúpt í undirlag húðarinnar. Meðferðin örvar náttúrulega endurnýjun húðar með því að auka framleiðslu kollagens og elastíns án skurðaðgerðar eða batatíma.
Áhrif meðferðarinnar eru að koma í ljós hægt og rólega í 6 mánuði eftir meðferðina: slöpp húð þéttist, fínar línur og hrukkur mildast og andlitsdrættir verða skýrari. Meðferðin er sársaukalaus og hægt er að snúa strax aftur til daglegra athafna að henni lokinni. Laserlyftingu má því líkja við andlitslyftingu – án skurðaðgerðar.

Laserlyfting
Fjöldi meðferða og árangur
Fjöldi meðferða fer eftir ástandi húðar og markmiðum hvers einstaklings. Ef húð er orðin slöpp er almennt mælt með 4–6 meðferðum til að ná sem bestum árangri, þó sjáist ávinningur eftir hverja meðferð.
Sé meðferðin framkvæmd í forvarnarskyni næst góður árangur oft eftir eina meðferð. Endurnýjun og örvun kollagens hefst strax eftir meðferð og heldur áfram næstu 3–6 mánuði. Mælt er með að einn mánuður líði á milli meðferða.
Laserlyfting
Nánari upplýsingar um Laserlyftingu
Á heimasíðu okkar finnur þú ítarlegar upplýsingar um Laserlyftingu. Þar geturðu kynnt þér meðferðina nánar, séð myndir, lesið um ávinning hennar og bókað tíma hjá sérfræðingum okkar.