Áfram í upplýsingar um vöru
1 Á 1

Dermapen HOME PEN

Dermapen HOME PEN

Verð 139,999 kr.
Verð Verð með afslætti 139,999 kr.
Afsláttur Uppselt
Magn

Dermapen HOME

Dermapen HOME er örugg og einföld örnálameðferð (microneedling) til notkunar heima. Meðferðin stuðlar að aukinni framleiðslu kollagens og vinnur þannig á fínum línum og hrukkum, litabreytingum, vandamálahúð og unglingabólum, opnum svitaholum, ójafnri áferð, roða, rósroða og fleiru, auk þess að stuðla að þéttari húð.

Dermapen HOME örvar náttúrulega kollagenframleiðslu með því að búa til nákvæmar og jafnar örsár í húðina, nánast sársaukalaust. Ferlið virkjar náttúruleg viðbrögð húðarinnar við sárum, endurnýjar yfirborðið og stuðlar þannig að heilbrigðari og unglegri húð. Örsárin mynda einnig örrásir sem stuðla að því að virk innihaldsefni komist dýpra inn í húðina. Prófanir hafa sýnt að þessar örrásir flytja allt að 80% meira af næringarefnum inn í húðina.

Dermapen HOME er besta viðbótin við Dermapen-meðferðir á stofu.

Hentar fyrir

Bætir sýnilega fjölmörg húðvandamál, þar á meðal:

  • fínar línur og hrukkur
  • þunna húð
  • sólskemmdir
  • stórar svitaholur
  • litabreytingar
  • aldursbletti
  • unglingabólur og roða

Helstu kostir

  • Nákvæmni og árangur
  • Hraði og þægindi
  • Öryggi
  • Auðveld notkun
  • Stuðningsvörur
  • Hjálpar við fjölbreytt húðvandamál
  • Stillanleg dýpt og hraði
  • Fljótur árangur
  • Öruggar notkunarleiðbeiningar

Tæknin

Dermapen HOME er búinn sérhannaðri AOVN tækni sem veldur litlum sem engum óþægindum við notkun. AOVN stingur nálunum lóðrétt inn og býr til lóðréttar örrásir, ólíkt öðrum tækjum sem draga nálarnar eftir húðinni og valda sársauka. Tæknin gerir deyfikrem óþarft, þannig að notkunin er þægilegri og batatíminn styttri.

Tækið er með stafrænum skjá og einfaldri snertistýringu, og hægt er að breyta stillingum með einum takka. Dýptin er stafrænt kvörðuð, sem tryggir jafna og örugga meðferð.

Snjallsími er nauðsynlegur til að setja tækið upp. 

Notkun

Undirbúningur húðar

  • Hreinsið húð og hendur vel með hreinsivörum frá Dp Dermaceuticals.
  • Úðið CLINIPREP+, sótthreinsandi húðhreinsi sem ver gegn sýkingu, á húðina

Undirbúningur meðferðar

  • Berið HYLA ACTIVE serum á húðina svo tækið renni mjúklega.
  • Takið nálahylki úr lokuðm umbúðum, setjið það varlega í Dermapen HOME og snúið fjórðung úr hring réttsælis til að læsa því.

Notkun tækisins

  • Kveikið á tækinu.
  • Stillið hraða og dýpt.
  • Rennið oddinum jafnt yfir húðina. Byrjið upp og niður, síðan til hliðanna og loks á ská.
  • Endurtakið á öllum svæðum sem á að meðhöndla.
  • Ljúkið meðferðinni með VITAMIN RICH REPAIR og COVER RECOVER í þeim lit sem hentar.

Hvað fylgir

Með Dermapen HOME fylgja vörurnar sem þarf til að framkvæma meðferð strax:

  • 1 x Dermapen HOME örnálatæki
  • 5 x Dermapen HOME nálahylki
  • 1 x Dp Dermaceuticals TRI-PHASE CLEANSER 3 ml
  • 1 x Dp Dermaceuticals HYLA ACTIVE 3 ml
  • 1 x Dp Dermaceuticals VITAMIN RICH REPAIR 3 ml
  • 1 x taska fyrir pennan
  • Fylgihlutir: hleðslutæki með USB-snúru og 2 litíum-rafhlöður
Sjá nánari upplýsingar