Áfram í upplýsingar um vöru
1 Á 1

P-TIOX Cream

P-TIOX Cream

Verð 30.999 kr.
Verð Verð með afslætti 30.999 kr.
Afsláttur Uppselt
Magn

Hrukkukrem sem vinnur gegn djúpum hrukkum og dregur úr ásýnd svitahola

P-TIOX Cream er háþróað andlitskrem sem hjálpar til við að draga sýnilega úr bæði fínum línum og djúpum hrukkum, á sama tíma og það bætir áferð húðarinnar og minnkar sýnileika svitahola. Formúlan inniheldur öflug peptíð, níasínamíð og Zinc PCA sem vinna saman að sléttari, jafnari og ljómandi húð.

Kremið er sérstaklega þróað til að styðja við árangur faglegra meðferða, en hentar einnig vel sem hluti af daglegri húðumhirðu.

Helstu kostir

  • Vinnur markvisst gegn fínum línum og djúpum hrukkum
  • Minnkar ásýnd svitahola
  • Bætir áferð húðarinnar, mýkir hana og gerir sléttari
  • Veitir húðinni aukinn ljóma og heilbrigðara yfirbragð
  • Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð
  • Prófað af læknum

Virk innihaldsefni

Myrixin™ og peptíð – hjálpa til við að draga úr sýnilegum hrukkum.

Tetrapeptíð (Glass Skin Peptide) – stuðlar að tærari og ljómandi húð.

Níasínamíð og LHA – bæta áferð húðarinnar og minnka sýnileika húðhola.

Zinc PCA – hjálpar til við að viðhalda jafnvægi húðarinnar.

Notkun
Berið á andlit, háls og augnsvæði tvisvar á dag, morgna og kvöld. Nuddið varlega inn í húðina þar til kremið hefur frásogast að fullu.

Sjá nánari upplýsingar