Phyto Corrective PDRN Serum
Phyto Corrective PDRN Serum
Phyto Corrective PDRN Serum – fyrir bólugjarna húð og roða
Phyto Corrective PDRN Serum er nýjasta viðbótin í Phyto Corrective-línu SkinCeuticals. Formúlan inniheldur hreint, líftæknilegt PDRN (e. Polydeoxyribonucleotide), án dýraafurða og unnið úr 100% hreinu DNA og RNA.
Serumið er þróað fyrir viðkvæma húð með roða sem þarfnast raka og stuðnings við húðvarnarlagið. PDRN styður við viðgerð húðvarnarlagsins og hjálpar til við að draga úr sýnilegum roða.
Serumið inniheldur einnig Ectoin (0,2%) sem róar húðina samstundis, Phyto Botanical Blend sem hjálpar til við að draga úr ertingu og róa húðina, ásamt Tripeptíð-8 rakagefandi samsetningu (glýserín + hýalúrónsýra) sem veitir allt að 48 klukkustunda raka.
Serumið hefur verið prófað sem eftirmeðferð (post-procedure) fyrir meðferðir sem fela í sér húðendurnýjun, til dæmis örnálameðferð (e. microneedling) og lasermeðferðir.
Helstu kostir
- Dregur úr sýnilegum roða um allt að 35% á 8 vikum
- Bætir áferð húðarinnar um allt að 36%
- Dregur úr bólumerkjum um allt að 28%
- Styður við viðgerð á varnarlagi húðarinnar og styrkir húðina
- Hjálpar til við að draga úr ertingu
- Veitir raka sem endist í allt að 48 klukkustundir
Virk innihaldsefni
PDRN (Polydeoxyribonucleotide) - líftæknilega unnið, án dýraafurða, úr 100% hreinu DNA og RNA. Styður við viðgerð og húðendurnýjun.
Ectoin (0,2%) - róar húðina samstundis.
Phyto Botanical Blend - jurtablanda sem hjálpar til við að róa húðina.
Tripeptíð-8 - hjálpar til við að draga úr ertingu og róa húðina.
Glýserín og hýalúrónsýra - rakagefandi samsetning sem viðheldur raka húðarinnar í allt að 48 klukkustundir.
Notkun
Settu 3–5 dropa í lófann og þrýstu varlega á andlit, háls og bringusvæði.
Að morgni: berðu á eftir C-vítamínserumi og á undan kremi og sólarvörn.
